Einungis um átján prósent þeirra hluta í HB Granda sem Hampiðjan bauð til sölu seldust í útboði. Alls voru boðnir til sölu um 160 milljónir hluta en fjárfestar keyptu 28,4 milljónir hluta á genginu 35,6.
Söluandvirðið er samkvæmt því um einn milljarður króna en hefði heildarhluturinn selst á sama gengi hefði andvirðið numið um 5,7 milljörðum króna.
Í tilkynningu Hampiðjunnar til Kauphallarinnar er vísað til erfiðra markaðsaðstæðna.
Meti Hampiðjan markaðsaðstæður hagstæðar síðar meir kann félagið að skoða frekari áform um sölu á eftirstandandi eignarhlut.
Líkt og mbl greindi frá á dögunum var Hampiðjan að reyna selja 8,79 prósent hlut í HB Granda til að fjármagna kaup á færeyska fyrirtækinu P/f Von. Hampiðjan er þriðji stærsti hluthafi HB Granda.
Frétt mbl.is: Kristján losar hlut í HB Granda
Félögin Hampiðjan og HB Grandi eru bæði að mestu leyti í eigu systkinanna Kristjáns Loftssonar, stjórnarformanns HB Granda, og Birnu Loftsdóttur auk Sigríðar Vilhjálmsdóttur. Hampiðjan hefur verið hluthafi í HB Granda um árabil.
Félagið Vogun hf. er stærsti hluthafi Hampiðjunnar og jafnframt stærsti hluthafi HB Granda.Vogun hf. er í eigu Hvals hf., sem aftur er í eigu Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf.
Venus er að lokum í eigu Kristjáns, Birnu og Sigríðar.
Í upphaflegri tilkynningu um útboðið sagði að Hampiðjan hafði þegar tryggt fjármögnun á viðskiptunum en að félagið hefði áhuga á að skoða möguleikann á að fjármagna viðskiptin að hluta eða í heild með sölu hlutabréfaeignar í HB Granda hf.
Gengi hlutabréfa HB Granda hafa lækkað um 2,95 prósent í 1,3 milljarða króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag.