„Það eru allir hundóánægðir, að sjálfsögðu, þar sem menn héldu að þessum endalausu uppsögnum, sem eru búnar að vera undanfarin ár, væri lokið í bili,“ segir Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, í samtali við mbl.is en eins og kom fram í gær var 46 starfsmönnum Arion banka var sagt upp störfum.
„Þetta var fólk á öllum aldri og á öllum starfsaldri; frá einu, tveimur árum upp í rúmlega 30 ára starfsaldur. Þeir sem eru með lengstan starfsaldur eru starfsmennirnir í útibúunum,“ bætir Friðbert við.
Um hópuppsögn er að ræða sem ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar, en samtals eru þetta 46 starfsmenn. Yfir 800 manns starfa hjá Arion banka og er meirihluti starfsmanna, um það bil 70%, konur. Flestir þeirra sem misstu vinnuna í gær störfuðu á viðskiptabankasviði bankans, sem er stærsta svið bankans.
Samkvæmt tilkynningu frá Arion banka í gær kom fram að uppsagnirnar væru liður í hagræðingu. „Það er hægt að hagræða á fleiri stöðum en bara að segja upp fólki, þó það virðist vera íslenska aðferðin. Ef maður heyrir orðið hagræðing þá þýðir það að reka fólk úr vinnu, sem er afar sérkennileg hugsun.“
Friðbert hefur ekki heyrt til þess að hinir bankarnir, Íslandsbanki og Landsbankinn, séu í svipuðum hugleiðingum, þó orðræðan í samfélaginu bendi til einhverrar hagræðingar. „Við heyrum bara það sama alla dagana. Stjórnendur bankanna, stjórnmálamenn og fjölmiðlar telja þetta kerfi allt of stórt og að það þurfi að hagræða enn frekar. Þennan söng heyrir maður alla daga og býst því við hverju sem er.“
Frétt mbl.is: Hópuppsögn hjá Arion banka