Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir að það sé enn sín skoðun að betra væri að verðlagskannanir væru í höndum Neytendasamtakanna en ekki Alþýðusambands Íslands.
Þetta kemur fram í svarbréfi Ólafs við grein ASÍ sem birtist á heimasíðu þess í gær. ASÍ sakaði Ólaf um óbilgirni og sagði sorglegt að hann væri að ráðast gegn ASÍ.
Frétt mbl.is: Afar óbilgjarnar ásakanir
Ólafur sagði í viðtali á Ríkisútvarpinu í gærmorgun að honum þætti rétt að Neytendasamtökin tækju yfir verðlagseftirlit ASÍ til að tryggja að framkvæmd og stjórn verðkannana sé hafin yfir allan vafa.
Ítrekar Ólafur í bréfi sínu í dag að í því felist ekki áfellisdómur yfir framkvæmd kannana hjá ASÍ. Neytendasamtökin lýsa vilja sínum til samstarfs við ASÍ og aðra um að koma verðkönnunarmálum í sem best horf til að gagn verði af fyrir neytendur í landinu og samkeppni, neytendum til hagsbóta. Neytendasamtökin hafa átt ágætt samstarf við ASÍ í ýmsum málum og vonandi verður svo áfram.