Bílaleigan Avis mun í haust bjóða deilibílaþjónustu innan borgarmarkanna undir merkjum bandarísku deilibílaþjónustunnar Zipcar sem er sú stærsta í heimi. Mun þjónustan nefnast Zipcar á Íslandi.
Hugmyndin gengur út á að notendur geti nálgast bíla til að nýta í stuttar ferðir án þess að þeir eigi bíl sjálfir. Þá megi finna á bílastæðum um borgina og notendur borgi áskriftargjald fyrir.
Til að byrja með þurfa notendur að skila bílunum aftur í sama stæði, en fjölgi bílunum opnast möguleikar á því að þeim megi leggja annars staðar eftir notkun.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að Reykjavíkurborg hygðist bjóða til leigu bílastæði til slíkrar þjónustu, en þegar er hafin vinna við tillögur að gjaldskrá og úthlutunarreglum fyrir bílastæðin. Verða tillögur teknar fyrir í umhverfis- og skipulagsráði í ágúst.
Hjálmar Pétursson, forstjóri Avis, segir í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag að fyrirtækið sé tilbúið að hefja þjónustuna. Það eina sem vanti sé að bílastæðin verði til reiðu.
Árni Sigurjónsson, verkefnisstjóri hjá bílaleigunni, vinnur að þróun deilibílaþjónustunnar. „Hugsunin er að brúa bilið fyrir þá sem velja bíllausan lífstíl. Það kemur alltaf að því að þeir þurfi að nota bíl í eitthvað, þegar þeir fara að versla o.s.frv. Með þessu minnkar bílaeign og traffík í borgum,“ segir hann.