Marel hefur landað stærstu pöntun í sögu fyrirtækisins með samningi við Costco í Bandaríkjunum um hátæknikjúklingaverksmiðju í Bandaríkjunum. Verksmiðjan verður staðsett í Nebraska og skapar verkefnið um 800 störf á svæðinu.
Greint var frá samstarfinu í ársfjórðungsuppgjöri Marel sem var gefið út í gær. Costco hefur fengið leyfi fyrir framkvæmdunum og er búist við að starfsemin hefjist í apríl 2019.
Heildarfjárfesting Costco nemur um 300 milljónum Bandaríkjadala. Costco sér um eggin þangað til þau klekjast og fara þá kjúklingarnir til kjúklingabænda í 30-40 daga. Þá eru þeir sendir í verksmiðjuna, sem Marel hannar, þar sem um tæpar tvær milljónir kjúklinga verða að fullunnum vörum í hverri viku og loks tekur skilvirkt dreifikerfi Costco við.