Skekkjan í talningu á fjölda ferðamanna á Keflavíkurflugvelli reyndist ekki lítil eins og Isavia og Ferðamálastofa gerðu ráð fyrir. Miðað við fjölda sjálftengifarþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí má gera ráð fyrir að ferðamannafjöldinn hér á landi hafi verið ofmetinn um nokkur hundruð farþega á degi hverjum í ár.
Niðurstöður könnunar Isavia og Ferðamálastofu sýna að 5% brottfararfarþega nota flugvöllinn eingöngu til millilendingar. Að auki voru 6% farþega sem millilentu og nýttu tækifærið til að fara út af flugvellinum og skoða sig um án þess að gista. Þá voru 3% brottfararfarþega erlendir ríkisborgarar sem búa á Íslandi til skemmri eða lengri tíma.
Í frétt Túrista segir að miðað við þessar niðurstöður hafi fjöldi svokallaðra sjálftengifarþega verið 30 þúsund í júlí og 8 þúsund útlendingar, búsettir hér á landi, flugu út. Erlendir ferðamennirnir á Íslandi hafi því ekki verið 272 þúsund eins og Ferðamálastofa gaf út heldur 234 þúsund.
Í fyrri útgáfu fréttarinnar var talað um oftaldar gistinætur en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands byggir talning á gistinóttum ekki á þessum tölum um hverjir fari um vopnaleitina líkt og skilja mátti á fyrri útgáfu fréttarinnar. Beðist er velvirðingar á þessu.