Loftleiðum Icelandic stendur til boða að kaupa meirihluta hlutafjár í flugfélaginu TACV á Grænhöfðaeyjum þegar félagið verður einkavætt. Unnið er að því að byggja upp alþjóðlega tengimiðstöð á flugvellinum þar í landi.
Þetta staðfesta Loftleiðir Icelandic, sem undirrituðu ráðgjafarsamning við stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum síðasta sumar, í svari við fyrirspurn mbl.is. Samningurinn felur í sér að Loftleiðir aðstoði ríkisstjórn eyjanna við að bæta rekstur ríkisflugfélagsins TACV í einkavæðingarferli sem unnið er í samstarfi við Alþjóðabankann.
Undirritað var samkomulag um leigu á tveimur B757-200 flugvélum til TACV yfir vetrarmánuðina 2017-2018. Þær flugvélar hafa þegar hafið rekstur og eru mannaðar af flugmönnum Icelandair, systurfélags Loftleiða, að því er kemur fram í svari frá Loftleiðum Icelandic.
Til lengri tíma er horft til þess að efla flugstarfsemi á Grænhöfðaeyjum og byggja upp tengimiðstöð á flugvellinum í Sal þannig að farþegar geti flogið stórbaugsleið milli Afríku og Norður-Ameríku annars vegar og Evrópu og Suður-Ameríku hins vegar. Slík tenging myndi stytta ferðatíma verulega á mörgum leiðum milli þessara fjögurra heimsálfa.
Í svari Loftleiða er tekið fram að ekkert liggi fyrir á þessari stundu um hvenær einkavæðing félagsins fari fram og engin ákvörðun hafi verið tekin varðandi forkaupsrétt Loftleiða á hlut í félaginu. Ekki var gefið upp hversu stóran meirihluta kauprétturinn næði yfir.