Útlit er fyrir að verslun Kosts í Kópavogi verði lokað eftir morgundaginn en það veltur á því hversu vel tekst að selja og rýma verslunina yfir helgina.
„Við stefnum að því að síðasti dagurinn verði á morgun en það fer eftir því hvernig gengur að selja yfir helgina,“ segir Jón Gerald Sullenberger, eigandi Kosts, í samtali við mbl.is.
Tilkynnt var síðustu helgi um að versluninni yrði lokað en Jón Gerald hefur sagt að Kostur geti ekki keppt við Costco, eina stærstu verslunarkeðju í heiminum.
Nú stendur yfir rýmingarsala og segir Jón að afslættirnir séu á bilinu 50-75%, allt eigi að seljast.
Greint var frá því í dag að lokun verslunarinnar hefði verið bæði starfsmönnum og viðskiptavinum erfið. „Kúnnarnir okkar eru hrikalega sárir yfir þessu. Þeir eru hálfklökkir eins og við og knúsa mann í versluninni,“ sagði Bryndís Björnsdóttir, starfsmaður.