Sjóvá verður aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar UAK-dagsins sem Ungar athafnakonur (UAK) standa fyrir í þriðja sinn 7. mars næstkomandi í Gamla bíói.
UAK-dagurinn 2020 verður helgaður samfélagslegri ábyrgð; hvað felst í henni, hvaða máli hún skiptir og hvaða tækifæri eru til staðar fyrir einstaklinga og fyrirtækja á því sviði. Á ráðstefnunni mun UAK fá til liðs við sig áhrifafólk úr íslensku atvinnulífi og aðra góða gesti en UAK-dagurinn er stærsti viðburður félagsins ár hvert.
„Þar sem UAK er aðeins rekið á félagsgjöldum og ekki í hagnaðarskyni skipta styrkir eins og þessi frá Sjóvá miklu máli fyrir okkur. Þá skiptir okkur einnig máli hvaða fyrirtæki standa á bak við okkur, en við leitumst eftir samstarfi við fyrirtæki með skýra jafnréttisstefnu og sterkar kvenfyrirmyndir innanhúss. Sjóvá er til fyrirmyndar í þeim málum og erum við virkilega spenntar fyrir samstarfinu,” er haft eftir Snæfríði Jónsdóttur, formanni UAK, í tilkynningu.
Sjóvá hefur lengi látið sig jafnrétti varða. Félagið var styrktaraðili Jafnvægisvogar FKA á þessu ári, hlaut jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins 2017 og jafnframt jafnlaunavottun árið 2014. Þá varð það nýlega fyrsta íslenska skráða félagið til þess að ná einkunninni 10 á kynjakvarðanum GEMMAQ. Stjórn Sjóvá samanstendur nú af 60% konum og er stjórnarformaður félagsins kona. Þá er jafnt hlutfall kvenna og karla í framkvæmdastjórn félagsins.
„Það er virkilega ánægjulegt fyrir okkur að taka þátt í UAK-deginum og styrkja UAK enda rímar mikilvæg starfsemi félagsins vel við gildi Sjóvá. Jafnrétti er okkur ofarlega í huga og höfum við undanfarin ár unnið ötullega að því að jafna hlut kynjanna hjá okkur,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, framkvæmdastjóra sölu- og ráðgjafarsviðs hjá Sjóvá, í tilkynningu.