British Airways ætlar að segja upp þúsundum flugfreyja og ráða þær aftur á helmingi lægri launum.
Um er að ræða hagræðingaraðgerðir vegna áhrifa kórónuveirunnar, að því er kemur fram í bréfi sem flugfélagið sendi starfsfólki, að sögn Daily Mail.
Willie Walsh, forstjóri IAG sem er móðurfélag British Airways, staðfesti í síðustu viku að tólf þúsund manns verði sagt upp þrátt fyrir að breska ríkisstjórnin hafi ákveðið að framlengja fjárhagsaðgerðir sínar til stuðnings fyrirtækjum til loka október.