Fjárfestingafyrirtækið Iceland Venture Studio (IVS), sem miðar að því að efla íslensk nýsköpun í tæknigeiranum, fjárfesti nýverið í tveimur íslenskum sprotafyrirtækjum. Hvor fjárfesting hljóðar upp á um sjötíu milljónir króna.
Fjárfestingafyrirtækið tilkynnti nýlega að það hafi safnað tveimur milljónum bandaríkjadala til viðbótar við milljónina sem fyrirtækið safnaði árið 2019, nemur fé sem fyrirtækið hefur aflað því rúmum 423 milljónum króna.
Þrátt fyrir að IVS einbeiti sér að því að fjárfesta í nýsköpun hérlendis hefur fyrirtækið einnig fjárfest í fyrirtækjum í Sílikondal í Bandaríkjunum, Ísrael og Indlandi.
Íslensku sprotafyrirtækin Flow og Retina Risk hlutu í kjölfar fjármögnunarinnar umrædda 70 milljóna króna styrki. IVS hefur áður fjárfest í báðum fyrirtækjum. Flow framleiðir hugleiðsluhugbúnað fyrir sýndarveruleika og leiðir notandann í gegnum hugleiðsluæfingar.
Retina Risk hefur sett á markað samnefnt forrit sem er áhættureiknir sem gerir fólki með sykursýki kleift að fylgjast með einstaklingsbundinni áhættu á að þróa með sér augnsjúkdóma sem leitt geta til sjónskerðingar og jafnvel blindu.
Bala Kamallakharan, stofnandi IVS, stofnaði einnig Startup Iceland og hefur fjárfest hérlendis í meira en áratug. Í frétt Tech er haft eftir honum að Ísland sé fullkominn vettvangur til að prófa og meta áhættu sprotafyrirtækja hvað varðar vöruþróun, teymisþróun og fleira.
Framkvæmdastjórar Flow og Retina Risk lýsa yfir ánægju sinni í frétt Tech.
„Þessi nýja fjárfesting mun leyfa okkur að færast nær markmiði okkar um að koma hugleiðslu ekki bara til fyrirtækja heldur einnig einstaklinga sem vilja taka þátt í hugleiðslu með leiðsögn,“ er haft eftir Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Flow.
„Þessi nýi sjóður mun vera okkur sérstaklega dýrmætur þegar við leitumst við að gera forritið okkar aðgengilegt í þróunarlöndum þar sem aðgangur að heilsugæslu er takmarkaður,“ er haft eftir Sigurbjörgu Ástu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Retina Risk.