Ferskur heimatilbúinn mangóís

Girnilegur mangóís.
Girnilegur mangóís. mbl.is/Marta María

Ef mangó er uppáhaldsávöxturinn þinn skaltu dekra við þig og útbúa ís með lífrænum mangóbitum sem fást frosnir í fínni matvörubúðum.

1/2 lítri rjómi

6 eggjarauður

8 msk. púðursykur

300 g frosið mangó, smátt skorið

Þeytið rjómann og setjið til hliðar. Þeytið eggjarauður vel ásamt púðursykrinum. Bætið mangóbitunum út í og þeytið betur. Þá er rjómanum blandað varlega saman og ísinn settur í box með loki og inn í frysti. Best er að láta ísinn frjósa í 12 tíma áður en hann er borinn á borð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert