Smartland og K100 buðu lesendum og hlustendum í Smárabíó á myndina Stóri dagurinn, sem er frönsk grínmynd um brúðkaupsundirbúning sem fer algerlega úr böndunum. Salurinn hló allan tímann enda er myndin algert met eins og sagt er. Þegar aðstæðurnar geta ekki orðið verri þá gerist eitthvað óvænt sem toppar allt. Á köflum minnir Stóri dagurinn á Klown, nema í myndinni eru ekki tveir jólasveinar í aðalhlutverkum heldur tvær þokkadísir og einn venjulegur karl með mikinn X-faktor eins og sagt er.
Kvikmyndin Stóri dagurinn, í leikstjórn Reem Kherici, er mögnuð frönsk grínmynd um óvenjulegan ástarþríhyrning. Hún leikur líka eitt af aðalhlutverkunum ásamt Nicolas Duvauchelle og Julia Piaton.
Stóri dagurinn fjallar um Mathias sem neyðist til að skipuleggja brúðkaupið með unnustunni og líka hjákonunni! Hjákonan starfar nefnilega sem brúðkaupsskipuleggjandi. Forsaga málsins er sú að hann svaf hjá brúðkaupsskipugeggjaranum og hún laumaði nafnspjaldi sínu í jakkann hans með von um áframhaldandi samband.
Eins og með flest allt sem kemur frá Frakklandi þá er myndin ekki aðeins með leiftrandi húmor heldur líka svo falleg fyrir augað. Guðdómleg húsakynni, trylltar skreytingar og umhverfi sem kallar fram sælutilfinningu.
Smartland og K100 vill þakka öllum fyrir komuna! Það var gaman að sjá svona mörg glöð andlit undir sama þaki.