Kynþokkinn mun drjúpa af Krabbanum í júlí

Krabbinn ætti að nýja júlímánuð til að breyta til.
Krabbinn ætti að nýja júlímánuð til að breyta til. mbl.is

Kæri Krabbi

Núna er rétti tíminn til að stíga næsta skref og framkvæma þær hugmyndir sem þú ert með. Plánetan Mars er staðsett þannig að Krabbanum mun takast ætlunarverk sitt þennan mánuðinn. Ástríðan verður til þess að þú færð fólk með þér í lið. Nýr kafli er að hefjast í lífi þínu og það eru spennandi tímar framundan.

Ef þú ert í sambandi mun makinn eiga hug þinn allan í júlí. Sambandið mun taka jákvæðum breytingum og ógiftir Krabbar fara jafnvel að íhuga hjónaband. Giftir Krabbar ættu þá að setjast niður með maka sínum og fara yfir sameiginleg markmið. Þeir sem eru óhamingjusamir í sambandinu ættu að nýta þennan tíma breytinga til að koma sér úr sambandinu.

Ef þú ert á lausu þá er þetta rétti tíminn til að blanda geði. Kynþokkinn mun drjúpa af þér og fólk mun svo sannarlega taka eftir þér.

Fjármálin eru að komast á réttan kjöl. Þú munt að öllum líkindum fá smá aukapening í júlí, það mun koma sér vel.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál