Tvíburinn mun kynnast spennandi fólki í júlí

Tvíburinn ætti að fara vel yfir fjármálin í júlí.
Tvíburinn ætti að fara vel yfir fjármálin í júlí. mbl.is/AFP

Kæri Tvíburi

Í upphafi mánaðar verður þú staðráðin/n í að ná tökum á fjármálunum. Gefðu þér tíma til að fara yfir skuldir, útgjöld og sparnaðarreikninga. Ef það hefur einhvern tímann verið rétti tíminn til þess að fara ofan í saumana á fjármálunum þá er það núna. Þú hefur verið að spreða svolítið á undanförnum vikum og mánuðum og munt að öllum líkindum halda áfram að eyða þar til í byrjun ágúst. En góðu fréttirnar eru þær að þú gætir fengið launahækkun um miðjan mánuðinn.

Gefðu þér tíma til að ferðast í upphafi mánaðar og mundu að það er ekki nausynlegt að fara langt. Hamingjan mun gera vart við sig og þú gætir hitt einhverja nýja og spennandi persónu. Ef þú ert í sambandi þá munu neistarnir fljúga. Þetta segir bara eitt, þú þarft að einbeita þér að makanum og þá mun verða mikil flugeldasýning.

Pláneturnar munu svo verða með þér í liði þegar kemur að ákvarðanatökum. Tækifærin eru þín, gríptu þau og þetta gæti orðið þinn uppáhalds tími á árinu.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál