Fregnir herma að Harry Bretaprins og kærasta hans, leikkonan Meghan Markle, muni að öllum líkindum setja upp hringa von bráðar.
Skötuhjúin eru talin hafa farið að slá sér upp fyrir níu mánuðum, og eru sögð yfir sig hrifin hvort af öðru.
Frétt mbl.is: Geta ekki afborið að vera aðskilin
Samkvæmt frétt Elle má búast við því að nýtt konunglegt brúðkaup geti orðið að veruleika á þessu ári, eða því næsta, að því gefnu að rauðbirkni prinsinn skelli sér á skeljarnar.
„Þau verða trúlofuð fyrir lok sumars. Þau hafa rætt einlæglega um samband sitt og sjá fyrir sér að þau vilji eyða lífinu með hvort öðru,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.
Markle er stödd í Toronto um þessar mundir, þar sem tökur fara fram á þættinum Suits. Hún er þó sögð íhuga að flytja til London í sumar.