Guðmundur Atli til liðs við KR

Guðmundur Atli Steinþórsson er kominn í KR.
Guðmundur Atli Steinþórsson er kominn í KR. mbl.is/Gunnar

Guðmundur Atli Steinþórsson, sem hætti hjá 1. deildarliði Fjarðabyggðar í knattspyrnu í gær, gekk í kvöld til liðs við úrvalsdeildarlið KR.

Guðmundur Atli er 21 árs sóknarmaður eða vinstri kantmaður og hafði leikið með Fjarðabyggð í tæp tvö ár en áður með  HK og Grindavík. Hann skoraði 3 mörk fyrir Fjarðabyggð í 1. deildinni í sumar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert