Heiðar Geir til liðs við Ängelholm

Heiðar Geir Júlíusson er farinn frá Fram til Svíþjóðar.
Heiðar Geir Júlíusson er farinn frá Fram til Svíþjóðar. mbl.is/Golli

Heiðar Geir Júlíusson, knattspyrnumaður úr Fram, er genginn til liðs við sænska 1. deildarliðið Ängelholm og leikur með því á komandi keppnistímabili. Frá þessu er greint á  vef sænska félagsins.

Heiðar Geir er 22 ára miðjumaður og hefur ávallt leikið með Fram, nema hvað hann var í láni hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Hammarby árið 2007. Hann hefur leikið 9 leiki með íslenska 21-árs landsliðinu.

Ängelholm er frá samnefndum bæ rétt hjá Helsingborg í suðurhluta Svíþjóðar. Félagið hafnaði í sjöunda sæti 1. deildar, næstefstu deildarinnar í Svíþjóð, á síðasta keppnistímabili.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert