Hannes: Ljótar lokatölur

Hannes Þór Halldórsson markvörður KR-inga mátti sætta sig við að sækja boltann þrívegis úr neti sínu í kvöld þegar KR mætti Breiðabliki á Kópavogsvellinum í kvöld. Blikarnir fögnuðu 3:0 sigri og frestuðu þar með sigurhátíð KR-inga sem eiga Íslandsmeistaratitilinn svo til vísan en þeim dugar að fá tvö stig úr síðustu þremur leikjum sínum.

„Það er ekki hægt að segja annað en að við höfum fengið skell. Mér fannst við hafa öll völd á leiknum í fyrri hálfleik þó svo að þeir hafi skorað. Í seinni hálfleik reyndum við og reyndum en ekkert gekk og Blikarnir skoruðu tvö mörk með mínútu millibili. Þetta voru því ljótar lokatölur,“ sagði Hannes Þór við mbl.is eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert