Kolbeinn með slitin liðbönd?

Kolbeinn Sigþórsson fær aðhlynningu á vellinum í kvöld.
Kolbeinn Sigþórsson fær aðhlynningu á vellinum í kvöld. mbl.is/Eggert

Hætta er á að Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsframherji í knattspyrnu og leikmaður Ajax í Hollandi, sé með slitin liðbönd í ökka en hann varð fyrir meiðslum undir lok fyrri hálfleiks við Króatíu á Laugardalsvellinum í kvöld og var borinn af velli.

Það mun þó ekki koma endanlega í ljós fyrr en eftir nánari skoðun en ökkli Kolbeins er mjög bólginn og ekki hægt að skera úr um meiðslin að svo stöddu.

Fyrstu upplýsingar sem mbl.is fékk um meiðslin, að staðfest væri að hann væri með slitin liðbönd, voru því ekki réttar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert