Annar titill í höfn hjá Arnóri Ingva

Arnór Ingvi Traustason í leik með Norrköping.
Arnór Ingvi Traustason í leik með Norrköping. Ljósmynd/Gunnar Elíson

Arnór Ingvi Traustason og samherjar hans í Norrköping innbyrtu sinn annan titil á nokkrum dögum þegar liðið bar sigurorð af Gautaborg, 3:0, í meistaraleiknum í Svíþjóð þar sem mættust meistarar Norrköping og bikarmeistarar Gautaborg.

Arnór Ingvi fór af velli á 75. mínútu í liði Norrköping sem tryggði sér sænska meistaratitilinn um síðustu helgi. Hjálmar Jónsson lék allan tímann í liði Gautaborgar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert