Byrjunarlið Íslands: Sex breytingar frá síðasta leik

Hannes Þór Halldórsson kemur inn í byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins.
Hannes Þór Halldórsson kemur inn í byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Hannes Þór Halldórsson kemur inn í byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Þýskalandi í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, gerir sex breytingar á byrjunarliði sínu frá 2:2-jafnteflinu gegn Norður-Makedóníu á sunnudaginn síðasta.

Ásamt þeim Hannesi koma þeir Jón Guðni Fjóluson, Ari Freyr Skúlason, Guðlaugur Victor Pálsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Þórir Jóhann Helgason allir inn í liðið.

Byrjunarlið Íslands:

Hannes Þór Halldórsson
Birkir Már Sævarsson
Brynjar Ingi Bjarnason
Jón Guðni Fjóluson
Ari Freyr Skúlason
Birkir Bjarnason
Guðlaugur Victor Pálsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Jóhann Berg Guðmundsson
Albert Guðmundsson
Þórir Jóhann Helgason

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert