Norræn svikamylla gegn Ítölum?

Buffon viss um óheiðarleika
Buffon viss um óheiðarleika Reuters

Allnokkrir ítalskir landsliðsmenn halda því fram að jafntefli 2:2 jafntefli Dana og Svía í Evrópukeppni landsliða fyrir fjórum árum hafi verið fyrirfram ákveðin úrslit en þau þýddu á þeim tíma að lið Ítalíu féll úr leik í keppninni.

Þetta kom fram í máli allnokkurra leikmanna ítalska liðsins í dag en tilefnið er leikur Rúmena og Hollendinga sem fram fer á eftir en þeir telja sig vita að þeir hollensku muni tapa leiknum og þannig senda bæði Frakkland og Ítalíu heim burtséð frá úrslitum í innbyrðis leik þeirra en leikirnir fara fram á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert