Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sagði á fréttamannafundi í Annecy í Frakklandi í morgun að allir leikmenn íslenska liðsins séu heilir heilsu og séu klárir í slaginn gegn Englendingum á mánudagskvöldið.
„Þeir leikmenn sem hafa spilað mikið í fyrstu þremur leikjunum hafa ekkert æft síðustu tvo daga. Í stað þess hafa þeir verið í slökun og að safna orku fyrir komandi átök.
Þeir eru allir orðnir hressir og verða með á æfingunni í dag. Það var ákaflega mikilvægt að fá tvo aukafrídaga og ná þar með að safna orku og ég vona að menn verði allir fullhlaðnir þegar út í leikinn gegn Englendingum kemur.