Þjálfari Rússa: Ísland getur unnið til verðlauna

Vladimir Maximov.
Vladimir Maximov. Reuters

,,Við töpuðum einfaldlega fyrir miklu betra liði. Lið mitt virkaði þreytt og við fengum mun styttri tíma til að hvíla okkur heldur en Íslendingar. Þeir keyrðu upp hraðann og við áttum fá svör við leik þeirra í fyrri hálfleik," sagði hinn gamalreyndi Vladimir Maximov þjálfari Rússa við mbl.is eftir ósigur sinna manna gegn Íslendingum á EM.

Spurður hvort hann sæi fyrir sér að Ísland gæti farið alla leið eða unnið til verðlauna á mótinu sagði Maximov; ,,Ég tel að Frakkar eða Pólverjar leiki til úrslita um titilinn en Ísland gæti vel náð þriðja sætinu,“ sagði Maximov.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert