Viduka kom Newcastle til bjargar

Mark Viduka var hetja Newcastle gegn Derby í dag.
Mark Viduka var hetja Newcastle gegn Derby í dag. Reuters

Mark Viduka bjargaði stigi fyrir Newcastle þegar liðið varð að sætta sig við 2:2 jafntefli gegn nýliðum Derby á heimavelli í dag. Viduka skoraði bæði mörk Newcastle, þau fyrstu síðan í september, og jafnaði Ástralinn metin sex mínútum fyrir leikslok.

Derby náði tvívegis forystunni. Hinn 19 ára Giles Barnes kom gestunum yfir með marki á 6. mínútu en Viduka jafnaði metin á 27. mínútu. Kenny Miller hélt upp á afmælisdag sinn með því að koma sínum mönnum í Derby yfir á 52. mínútu en Viduka var aftur á ferðinni á 84. mínútu.

Derby, sem vann fyrri leikinn gegn Newcastle á Pride Park sem er eini sigurleikur liðsins á tímabilinu, situr sem fyrr á botninum með 7 stig en Newcastle í 9.-10. sæti ásamt Blackburn með 26 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert