Cech ekki með Chelsea næstu vikurnar

Petr Cech er meiddur í ökkla.
Petr Cech er meiddur í ökkla. Reuters

Petr Cech markvörður Chelsea verður frá keppni næsta mánuðinn vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir á æfingu Chelsea-liðsins fyrir leikinn gegn Olympiakos í Meistaradeildinni. Ítalinn Carlo Cudicini leysti Cech af hólmi í leiknum gegn gríska liðinu í gær og mun verja mark liðsins í komandi leikjum.

Chelsea er í baráttunni á þremur vígstöðum, í deildinni, bikarnum og í Meistaradeildinni og er mikil blóðtaka fyrir Lundúnaliðið að geta ekki teflt Cech fram þó svo að Cudicini sé mjög góður á milli stanganna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert