Newcastle skellti Tottenham á White Hart Lane

Michael Owen skoraði eitt marka Newcastle.
Michael Owen skoraði eitt marka Newcastle. Reuters

Newcastle vann í dag stórsigur á Tottenham, 4:1, en liðin áttust við á White Hart Lane, heimavelli Tottenham. Darren Bent kom Tottenham yfir á 25. mínútu en Nicky Butt jafnaði metin á lokamínútu fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik tóku gestirnir öll völd og þeir Geremi, Michael Owen og Obafemi Martins gerðu sitt markið hver.

Þetta var annar sigur lærisveina Kevins Keegans í Newcastle í röð en liðið lagði Fulham um síðustu helgi, 2:0

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert