Lampard farinn til Inter

Frank Lampard virðist vera orðinn leikmaður Ítalíumeistara Inter.
Frank Lampard virðist vera orðinn leikmaður Ítalíumeistara Inter. Reuters

Ítalska liðið Inter Mílanó hefur klófest enska landsliðsmanninn Frank Lampard frá Chelsea en það er France football sem greinir frá þessu. Samningurinn er til fjögurra ára. Hjá Inter hittir Lampard fyrir sinn gamla knattspyrnustjóra hjá Chelsea, hinn portúgalska José Mourinho.

Frank Lampard er 30 ára gamall og hefur verið í herbúðum Chelsea síðan 2001. Þar lék hann 247 leiki og skoraði 71 mark. Lampard er alinn upp í unglingastarfi West Ham og lék þar fyrstu sjö ár meistaraflokksferils síns. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert