Carson til WBA

Scott Carson er kominn til WBA.
Scott Carson er kominn til WBA. Reuters

Markvörðurinn Scott Carson er genginn til liðs við nýliða WBA og mun leika með því á komandi leiktíð. Carson var í láni hjá Aston Villa á síðustu frá Liverpool en eftir að Liverpool samdi við Brasilíumanninn Diego Cavaleri á dögunum ákvað félagið að losa sig við Carson.

Stoke City, sem er eins og WBA nýliði í deildinni, hafði fyrr í vikunni náð samkomulagi við Liverpool um kaupverðið á Carson, 3,5 milljónir punda, en WBA blandaði sér í baráttuna og tókst í dag að semja við leikmanninn til fjögurra ára.

WBA greiðir 3,25 milljónir punda fyrir markvörðinn en sú upphæð getur hækkað upp í 4 milljónir punda við ákveðinn leikjafjölda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert