Liverpool með Cavenaghi í sigtinu

Fernando Cavenaghi.
Fernando Cavenaghi. Reuters

Liverpool er á höttunum eftir framherjanum Fernando Cavenaghi að því er fram kemur á fréttavef Daily Mail í dag. Cavenaghi er landsliðsmaður frá Argentínu sem Liverpool er sagt reiðubúið að greiða 13 milljón punda fyrir þegar opnað verður fyrir félagaskipti að nýju í janúar.

Cavenaghi hefur skorað fjögur mörk í 7 leikjum með Bordeux á leiktíðinni og á síðustu leiktíð skoraði Argentínumaðurinn 22 mörk í 35 leikjum með liðinu. Hann kom til Bordeaux frá River Plate og greiddi franska liðið 5,5 milljónir punda fyrir leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert