Fabregas segist ekki á leið til AC Milan

Fabregas segist ekki vera á leið til AC Milan, þó …
Fabregas segist ekki vera á leið til AC Milan, þó svo hann sé aðdáandi liðsins. Reuters

Cesc Fabregas, miðvallarleikmaður Arsenal, hefur borið til baka fréttir þess efnis að hann kunni að vera á leið til ítölsku risanna í AC Milan.

Fabregas hafði látið hafa eftir sér að ef hann færi til Ítalíu, þá myndi hann vilja leika með AC Milan, því þeir léku bestu knattspyrnuna þar syðra.

„Það er rétt að ég viðurkenndi aðdáun mína á AC Milan, sökum sigurhefðar þeirra og áferðarfallegrar knattspyrnu. En það er eins langt og það nær. Það er mikill heiður að bera fyrirliðabandið hér hjá Arsenal og ég er 100% skuldbundinn félaginu. Mín framtíð liggur hér,“ sagði leikmaðurinn á heimasíðu Arsenal, arsenal.com.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert