Anderson og Evans frá keppni í þrjár vikur

Brasilíumaðurinn Anderson í leik með United.
Brasilíumaðurinn Anderson í leik með United. Reuters

Brasilíumaðurinn Anderson og Norður-írski varnarmaðurinn Jonny Evans verða frá æfingum og keppni næstu þrjár vikurnar en báðir meiddust þeir í leiknum gegn Derby í undanúrslitum deildabikarkeppninnar á þriðjudagskvöldið. Þá varð Portúgalinn Nani einnig fyrir meiðslum og hann verður að hvíla næstu vikuna.

Þar með fjölgar á meiðslalista Englandsmeistaranna en fyrir á honum eru Rio Ferdinand, Wayne Rooney, Patrice Evra, Rafael da Silva, Ji-sung Park, Wes Brown og Owen Hargreaves.

Enginn þessara leikmanna verður með United á morgun þegar liðið tekur á móti Tottenham í 4. umferð ensku bikarkeppninnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert