Gerðum sjálfum okkur erfitt fyrir

Didier Drogba fagnar marki sínu í kvöld.
Didier Drogba fagnar marki sínu í kvöld. Reuters

Frank Lampard og Didier Drogba skoruðu þrjú af fjórum mörkum Chelsea gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í kvöld og þeir voru að vonum ánægðir þegar BBC ræddi við þá í leikslok.

„Þetta var magnaður fótboltaleikur en við gerðum sjálfum okkur mjög erfitt fyrir með slakri frammistöðu í fyrri hálfleik. Það sýndi hinsvegar karakterinn í liðinu hvernig við fórum að því að snúa leiknum okkur í hag," sagði Lampard sem skoraði tvö síðari mörkin. Hann kom Chelsea í 3:2 og skoraði svo jöfnunarmarkið, 4:4, sem drap endanlega í vonum Liverpool.

„Við vorum mjög niðurdregnir yfir því hvernig við spiluðum í fyrri hálfleiknum. Kannski fórum við á taugum þar og ég hugsa að mörkin þrjú sem við fengum á okkur síðasta laugardag hafi setið aðeins í okkur," sagði Drogba en hann kom Chelsea á bragðið í byrjun síðari hálfleiks með því að skora fyrsta mark liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert