Varamaðurinn Cauley Woodrow var hetja Luton er liðið gerði 1:1-jafntefli á útivelli gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Woodrow jafnaði metin í uppbótartíma og tryggði Luton eitt stig, sem gæti reynst mikilvægt í fallbaráttunni.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.