Kristján Einar keppir í Opnu F3 Evrópumótaröðinni

Kristján Einar á Dallara formúlu-3 bíl sínum í Valencia í dag. stækka

Kristján Einar á Dallara formúlu-3 bíl sínum í Valencia í dag.

Kristján Einar Kristjánsson hóf í dag keppni í formúlu-3, í  Opnu F3 Evrópumótaröðinni svonefndu. Keppir hann fyrir breska liðið West-Tec sem verið hefur sigursælt í breskum og evrópskum kappakstri undanfarna tvo áratugi.

Í vetur var Kristján Einar til skoðunar hjá Newman-Wachs liðinu í Bandaríkjunum og stóðu þar dyr honum opnar, en ekki gekk að fjármagna þátttökuna.

Mótlætið herti hans nánustu sem hófust handa við að leita hófanna annars staðar. Niðurstaðan var keppni í opnu F3 Evrópumótaröðinni, sem fer að mestu leyti fram á Spáni. Þó er einnig keppt í Imola á Ítalíu, Spa í Belgíu, Donington í Englandi og Magny-Cours í Frakklandi.

„Ég vildi ekki senda neitt á fjölmiðla fyrr en við værum komin með allt undirskrifað og okkar mann á brautina.  Mitt í svartnættinu heima þá fundum við ljós  í myrkrinu. Náðum við að fjármagna það sem þurfti til í fyrri hluta keppnistímabilsins.

Bíll Kristjáns Einars tileinkaður bjartsýni og nýju upphafi

Þannig að Íslendingurinn er sem sé mættur til leiks á bíl sem er tileinkaður er Íslandi, bjartsýni og nýju upphafi,“ segir Vilborg Einarsdóttir, móðir Kristjáns Einars, sem verið hefur stoð hans og stytta og stærsta hjálparhella á keppnisferli hans.

Því er ekki undra að henni hafi verið létt þegar Kristján Einar hóf þátttöku með liði sínu í Valencia á Spáni í dag. „Ég fékk alveg tárin í augun þegar bíllinn fór út á braut í tímatökum í morgun,“ segir hún.

Keppt er á dæmigerðum formúlu-3 bílum sem Dallara-fyrirtækið smíðar en mótorar allra keppnisbílanna eru frá Fiat fengnir. 

Hjá öflugu liði

Team West-Tec hefur náð góðum árangri á undanförnum árum í hinni spænsku formúlu-3, sem Opnu F3 Evrópumótaröðinni tekur við af, og í Speedcar-mótunum. Þá teflir liðið fram ökumönnum í alþjóðaflokki hinnar bresku formúlu-3 Le Mans-mótaröðinni. Kristján Einar er því vel settur hjá þessu liði.

Liðsfélagi hans hjá West-Tec er Norðmaðurinn Thor Christian Ebbesvik sem náð hefur góðum árangri og unnið mörg mót í hinni spænsku formúlu-3. Þar á meðal kappakstur sem fram fór á undan formúlu-1 kappakstrinum í Valencia í fyrra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is