Margrét Lára með þrennu í stórsigri Vals

Hart barist í leik Vals og Stjörnunnar í kvöld.
Hart barist í leik Vals og Stjörnunnar í kvöld. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Keppni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu hófst í kvöld með þremur leikjum. Íslandsmeistarar Vals unnu öruggan sigur á Stjörnunni, 5:1, Keflavík burstaði Þór/KA, 7:0, og nýliðarnir Fjölnir og Fylkir gerðu markalaust jafntefli.

Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu fyrir Val og þær Nína Ósk Kristinsdóttir og Dóra María Lárusdóttir gerðu sitt markið hver. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði mark Stjörnunnar.

Danka Podovac og Guðný Þórðardóttir gerðu tvö mörk hver fyrir Keflavík og þær Bryndís Bjarnsdóttir, Björg Magnea Ólafs og Vesna Smiljkovic gerðu sitt markið hver.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert