Titilvonir Valencia úr sögunni

Diego Forlan skoraði tvö mörk fyrir Villareal í dag.
Diego Forlan skoraði tvö mörk fyrir Villareal í dag. Reuters

Vonir Valencia um að hampa spænska meistaratitlinum í knattspyrnu urðu að engu í dag þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Villareal, 2:3. David Villa skoraði bæði mörk Valencia en Diego Forlan skoraði tvö marka Villareal og danski landsliðsmaðurinn Jon Dahl Tomasson skoraði eitt en hann kom inná sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu.

Valencia er í fjórða sæti með 65 stig, Sevilla hefur 67 og Real Madrid og Barcelona eru með 69 stig en þrjú síðastnefndu liðin eiga leik til góða. Rétt í þessu er að hefjast leikur Real Madrid og Deportivo La Coruna og síðar í kvöld tekur Barcelona á móti Getafe.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert