Fjarðabyggð lagði Njarðvík - Enn eitt tap hjá KA

Þorvaldur Örlygsson er þjálfari Fjarðarbyggðar.
Þorvaldur Örlygsson er þjálfari Fjarðarbyggðar.

Fjarðabyggð bar í kvöld sigurorð af Njarðvík, 2:0, í 1. deild karla en liðin áttust við á Eskifjarðarvelli. Jóhann Ingi Jóhannsson og William Geir Þorsteinsson skoruðu mörkin fyrir Fjarðabyggð í fyrri hálfleik. Fjarðabyggð er í öðru sæti deildarinnar með 22 stig og þremur stigum á eftir Grindvíkingum.

Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð í Garðabæinn og lagði Stjörnuna, 0:1, með marki frá Ellerti Hreinssyni.

Í Breiðholti vann Leiknir stórsigur á KA, 4:0. Jakob Spangsberg skoraði þrjú marka Leiknismanna og Elíbergur Sveinsson skoraði eitt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert