KR-ingar bikarmeistarar í þriðja sinn

Olga Færseth kom KR yfir.
Olga Færseth kom KR yfir. Árni Torfason

KR lagði Keflavík 3:0 í úrslitaleik VISA bikarkeppnin kvenna í dag og varð þar með bikarmeistari þriðja sinni í sögu félagsins. Olga Færseth gerði fyrst markið og síðan bætti Hrefna Huld Jóhannesdóttir við tveimur mörkum.

Hrefna Huld Jóhannesdóttir var að bæta þriðja markinu við fyrir KR í bikarúrslitaleiknum við Keflavík. Markið kom á 55. mínútu og var þetta annað mark Hrefnu í leiknum.

KR-ingar eru komnir í 2:0 í bikarúrslitaleiknum við Keflavík. Olga Færseth skoraði á 15. mínútu og Hrefna Huld Jóhannesdóttir bætti öðru marki við fimm mínútum síðar en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.

Olga Færseth er búin að koma KR yfir í bikarúrslitaleik kvenna þar sem liðið mætir Keflavík. Olga skoraði markið á 15. mínútu en leikurinn hefur verið í jafnvægi hingað til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert