Stefán lánaður til Norrköping

Stefán Þór Þórðarson, fyrir miðju, er á leið til Norrköping …
Stefán Þór Þórðarson, fyrir miðju, er á leið til Norrköping á ný. mbl.is/ÞÖK

Stefán Þór Þórðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, hefur verið lánaður til sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping næsta mánuðinn.

Stefán lék með sænska liðinu í nokkur ár og naut gífurlegra vinsælda meðal stuðningsmanna þess en sneri heim í vetur eftir að hafa tekið þátt í að tryggja liðinu úrvalsdeildarsæti.

Samkvæmt vef Skagamanna tókst liðinu ekki að finna mann til að fylla skarð Stefáns og leitaði því til hans á ný. Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Gunnar Þór Gunnarsson leika einnig með Norrköping.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert