Eiður Smári með tvö gegn Hibernian

Eiður Smári skoraði tvö í kvöld.
Eiður Smári skoraði tvö í kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen skoraði tvö af sex mörkum Barcelona þegar liðið lagði Hibernian í æfingaleik í kvöld.

Eiður Smári kom Börsungum yfir á 8. mínútu og skoraði síðan aftur á 17. mínútu en tveimur mínútum áður hafði Messi komið Barcelona í 2:0.

Eiður Smári var í byrjunarliðinu og lék fram í miðjan síðari hálfleik þegar Aliexandre Hleb kom inn fyrir hann í sínum fyrsta leik með Barcelona. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert