Margrét Lára í byrjunarliðinu í dag

Margrét Lára Viðarsdóttir lék allan leikinn í dag.
Margrét Lára Viðarsdóttir lék allan leikinn í dag. Algarvephotopress

Margrét Lára Viðarsdóttir var í fyrsta skipti í byrjunarliði Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en lið hennar gerði þá jafntefli, 2:2, gegn Stattena á heimavelli.

Margrét Lára kom inná sem varamaður í þremur fyrstu leikjum Linköping en í dag lék hún allan leikinn og var mjög ágeng við mark Stattena en hafði ekki heppnina með sér hvað markaskorun varðar. Stattena jafnaði metin í 2:2 úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Linköping hefur nú 7 stig eftir fjórar umferðir og er í fjórða sætinu eftir þessi úrslit í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert