Góð innkoma hjá Eiði Smára í sigurleik Mónakó

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. www.asm-fc.com

Eiður Smári Guðjohnsen átti góða innkomu í seinni hálfleik þegar Mónakó lagði Sochaux, 2:0, í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Eiði var skipt inná á 58. mínútu í stöðunni 0:0 og var hann mikið í boltanum og átti þátt í öðru marki liðsins.

Nene skoraði bæði mörk Mónakó á síðustu sjö mínútum leiksins. Eiður átti sinn þátt í öðru markinu en hann átti sendingu á varamanninn Yannick Sagbo sem gaf á Nene og Brasilíumaðurinn skoraði af stuttu færi.

Eiður Smári hafði ekkert komið við sögu í síðustu fjórum deildarleikjum Mónakó-liðsins sem í vikunni lagði Montpellier á heimavelli, 4:0.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert