Kallaði Eyjafjallajökul Guðjohnsen

Jose Mourinho á fréttamannafundinum í dag.
Jose Mourinho á fréttamannafundinum í dag. Reuters

,,Ég hef áhyggjur af Guðjohnsen,“sagði Jose Mourinho þjálfari Ítalíumeistara Inter við fréttamenn í dag í aðdraganda úrslitaleiks Inter og Bayern München í Meistaradeildinni sem eigast við í Madrid á laugardagskvöldið.

Þessu svaraði Portúgalinn þegar hann var spurður hvort hann hefði áhyggjur af leiknum gegn Bæjurum og litu fréttamenn á hvorn annan þegar hann svaraði með þessum hætti. En Mourinho útskýrði fyrir þeim hvað hann átti við;

,,Ég veit ekki hvað eldfjallið heitir. Það er er svo erfitt að nefna það svo það er bara Guðjhonsen, “ sagði Mourinho og brosti í kampinn en Eiður lék undir hans stjórn hjá Chelsea og var tvívegis Englandsmeistari með Portúgalann við stjórnvölinn.

,,Ég hef áhyggjur af eldfjallinu. Ég myndi vilja halda til Madrid á föstudaginn en það gæti farið svo að við þyrftum að fara á morgun,“ sagði Mourinho.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert