Björn Bergmann hetjan - Stefán sá rautt

Björn Bermann Sigurðarson.
Björn Bermann Sigurðarson. www.lsk.no/no

Björn Bergmann Sigurðsson tryggði Lilleström sigur gegn Start í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lilleström fagnaði 2:1 sigri og skoraði Björn Bergmann sigurmarkið á 88. mínútu en tólf mínútum hafði Stefán Logi Magnússon markvörður Lilleström fengið að líta rauða spjaldið þegar hann braut á leikmanni Start innan vítateigs. Start jafnaði úr vítaspyrnunni sem dæmd var á Stefán.

Björn Bergmann lék allan tímann í framlínu Lilleström og Stefán Gíslason lék allan tímann á miðjunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert