Markalaust í fyrsta leik Eiðs Smára

Eiður Smári með treyju Club Brugge ásamt Arnari Grétarssyni sem …
Eiður Smári með treyju Club Brugge ásamt Arnari Grétarssyni sem tók við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá liðinu á dögunum. AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Club Brugge og spilaði allan tímann í sínum fyrsta leik fyrir liðið í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Club Brugge mætti Gent í hörkuleik en Eiði Smára tókst ekki að skora frekar en nokkrum öðrum í leiknum. Liðin skildu jöfn, markalaus.

Club Brugge er því áfram í fimmta sæti deildarinnar með 40 stig en Gent er í 13. sæti með 24 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert