Ari Freyr aftur í vinstri bakvörð og valinn í lið umferðarinnar

Ari Freyr Skúlason í leik með OB.
Ari Freyr Skúlason í leik með OB. Ljósmynd/OB.dk

Ari Freyr Skúlason fyrirliði OB er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá danska blaðinu Tipsbladet.

Ari Freyr unnu langþráðan sigur í deildinni en þeir lögðu Hobro, 3:1. Ari Freyr fékk loks að spila sína stöðu með félagi sínu. Honum var stillt upp í stöðu vinstri bakvarðar eins og hann spilar með íslenska landsliðinu og hann átti afbragsleik í sigrinum á móti Hobro. Í umsögn Tipsbladet segir að Ari Freyr hafi spilað sinn besta leik á tímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert