Messi er óstöðvandi

Messi fagnar marki gegn Eibar í kvöld.
Messi fagnar marki gegn Eibar í kvöld. AFP

Lionel Messi er algjörlega óstöðvandi en Argentínumaðurinn sá um að tryggja Barcelona 2:0 útisigur gegn Eibar í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Messi skoraði bæði mörk Börsunga, það fyrra úr vítaspyrnu, og hann er þar með orðinn markahæstur í deildinni. Messi hefur skorað 32 mörk, tveimur meira en Cristiano Ronaldo.

Barcelona náði með sigrinum fjögurra stiga forskoti á Real Madrid í toppsætinu en Real Madrid mætir Levante á heimavelli á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert