Aron Jóhannsson spilaði bróðurpartinn í sigurleik Bandaríkjanna gegn heimsmeisturum Þjóðverja í vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Köln í Þýskalandi í kvöld en lokatölur urðu 2:1.
Mario Götze kom Þjóðverjum á bragðið eftir 12 mínútna leik en Mikkel Diskerud jafnaði metin fyrir Bandaríkin á 41. mínútu eftir stoðsendingu Michaels Bradley.
Aron spilaði í 74. mínútur í leiknum en hann fór út af fyrir Bobby Wood sem skoraði svo sigurmarkið þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.